Pókersamband Íslands afhendir peningastyrki

Eins og áður hefur komið fram þá hélt Pókersamband Íslands góðgerðarmót (sjá fyrri frétt) þann 3. apríl síðastliðinn. Á mótinu söfnuðust 300.000.kr sem renna til Fjölskylduhjálpar, Sjónarhóls og Regnbogabarna. Stjórnarmeðlimir PSÍ afhentu peningastyrkina í dag og var vel tekið á móti okkur á öllum stöðum.

Sigurður Dan (PSÍ) ásamt Ásgerði (Fjölskylduhjálp) við afhendingu á 100.000.kr styrk frá Pókersambandi Íslands

Sigurður Dan (PSÍ) ásamt Ásgerði (Fjölskylduhjálp) við afhendingu á 100.000.kr styrk frá Pókersambandi Íslands.

Steinn Stefánsson (PSÍ) afhendir Guðríði (Sjónarhóli) 100.000.kr peningastyrk frá Pókersambandi Íslands.

Steinn Stefánsson (PSÍ) afhendir Guðríði (Sjónarhóli) 100.000.kr peningastyrk frá Pókersambandi Íslands.

Góðgerðarmótið heppnaðist vel!

Góðgerðarmót - Café Amsterdam

Góðgerðarmót - Café Amsterdam

Fyrsta, en alls ekki síðasta, góðgerðarmót Pókersambands Íslands fór fram í

gærkvöldi á Café Amsterdam. Það voru 45 spilarar sem sáu sér fært að mæta og létu heldur betur gott af sér leiða því það söfnuðust 300.000.kr sem gera að meðaltali 6700.kr á hvern spilara.

Í mótshléi var dregið úr happdrættinu og hér er heildar vinningalistinn og búið er að hafa samband við þá vinningshafa sem ekki voru á staðnum þegar dregið var.

Gjafabréf frá Dominos x2
Bjórkort frá Gullöldinni
Bjórkort frá Maverick
Bjórkort frá Kojack
Pizzaveisla frá Gullöldinni
Pizzaveisla frá Kojack
Gisting á Hilton Hótel
8 bátar frá Subway
2 hamborgaratilboð frá Búllunni Hafnarfirði
10x 990 risafrelsi frá Vodafone
Whiskey flaska
Gisting á Fosshótel
3x Klippingar
Sjampó og hárvörur
Lunch á veitingastaðnum Salt
6x Risapáskaegg Góu
2x 100€ inneignir frá PokerHills
Copac spilastokkur frá Spilavinum
Kynlífsbiblían (bók)
Kynlífsbiblían (stokkur)

Það voru svo þau Bergdís, Sævar Ingi og Arnór Freyr sem stóðu uppi sem sigurvegarar á mótinu og fá að styrkja málefni sem þau völdu sér.

  1. Bergdís (100.000.kr, Fjölskylduhjálp)
  2. Arnór Freyr (100.000.kr, Regnbogabörn)
  3. Sævar Ingi (100.000.kr, Sjónarhóll )
Bergdís, Sævar og Arnór

Bergdís, Sævar og Arnór

Stjórn Pókersambandsins þakkar þeim aðilum og fyrirtækjum sem sáu sér fært að gefa vinninga í happdrættið. Einnig viljum við þakka Ara á Cafe Amsterdam fyrir afnot af húsnæði og alla þá hjálp sem hann veitti á staðnum. Síðast en ekki síst viljum við þakka þeim frábæru spilurum sem sáu sér fært á að mæta og gera þetta kvöld eins gott og það varð. Takk fyrir frábært mót!

Á Facebook síðu PSÍ má sjá fleiri myndir.

Kveðja, Stjórnin.

Góðgerðarmót PSÍ – Hjálpumst að við að styrkja gott málefni!

Þriðjudaginn 3. apríl mun Pókersamband Íslands standa fyrir góðgerðar pókermóti. Mótið mun fara fram á Café Amsterdam Hafnarstræti 5 og hefst klukkan 20:00.

Pláss verður fyrir 81 spilara í mótinu (9 borð). Þáttökugjald verður 1000.kr og hægt verður að kaupa sig inn eins oft og menn vilja í ákveðinn tíma. Fyrir hverjar  1000.kr fást 5000 spilapeningar og mun blindfé byrja í 50/100 og hækka á 15 mín fresti. Ef fullt verður í mótið er öllum velkomið að gefa styrk en allir þeir sem taka þátt í mótinu eða gefa styrk fara í vinningspottinn (1x fyrir hverjar 1000.kr) og eiga möguleika á að vinna flotta vinninga.

Allur peningur sem safnast mun skiptast niður á þrjú efstu sætin í mótinu sem fá að velja hvert þeirra styrkur mun fara. Vinningshafarnir geta valið á milli eftirfarandi málefna til að styrkja: Barnaspítali Hringsins, Regnbogabörnn, Fjölskylduhjálp, Umhyggja, BUGL og Sjónarhóll. Einnig mun Café Amsterdam gefa 300.kr af hverjum seldum bjór til styrktar góðu málefni.

Nú er tækifæri fyrir pókerspilara íslands að láta gott að sér leiða í nafni pókersins! Fjölmennum á þetta glæsilega mót og tökum vini og vandamenn með!

Meiri upplýsingar um þennan viðburð má sjá hér.

Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta en hafa áhuga á að styrkja þessi málefni í gegnum Pókersamband Íslands er bent á að hafa samband við Stein Stefánsson í síma 8479084 eða á pokersamband@pokersamband.is

 

Ferðasaga

Tveir meðlimir Pókersambandsins, Eirný og Viktor, fóru á ráðstefnu á vegum International Federation of Poker í nóvember síðastliðnum.

Ráðstefnan var haldin í London og á sama tíma fóru fram tvö áhugaverð pókermót á vegum IFP. Það var annars vegar “The Nations Cup” sem var duplicate póker mót þar sem landslið tólf þjóða áttust við og “The Table” þar sem mörgum af sterkustu spilurum heims var boðið að taka þátt og fór Hrannar Hallgrímsson fyrir Íslands hönd á það mót. Tilgangur IFP með þessum viðburðum var að vekja athygli á póker sem hugaríþrótt. Á vef IFP má sjá úrslitin úr báðum þessum áhugaverðu mótum eða með því að smella hér.

Hrannar Hallgrímsson

Hrannar Hallgrímsson

Á meðal spilara í “The Table” mótinu voru Gus Hansen, Tony G, Sam Trickett, Antonia Esfandiari, David Benyamine, Barry Greenstein, Vannessa Selbst og FP Kelly svo einhverjir séu nefndir. Hrannar lenti á borði Andy Black sem endaði svo á að taka Hrannar út með AQ á móti JJ hjá Hrannari.

Viktor Einarsson ritaði nokkur orð um ferðina:

Ég (ViktorAK) og Eirný formaður Pókersambands Íslands fórum til London fyrir hönd PSÍ 16.nóvember. Flug og gisting var greitt af International Federation of Poker (IFP).

17.nóvember mætum við á ráðstefnuna með stjórnendum allra pókersambanda heimsins. Ég ætla að reyna að gera helstu umræðuefnunum skil hér að neðan.

Það sem stóð hæst af þessari ráðstefnuna var stefnan sem IFP vill taka með póker. Stefnan fjallar um það að póker verður í framtíðinni spilaður upp á stig en ekki peninga og væru leaderboards þar sem efstu spilararnir myndu fá greidda peninga með styrkjum frá styrktaraðilum en ekki mótspilurum, ekki ósvipað gólfi, þar fá reyndar allir peninga.

Þessi stefna er tekin sökum “Zynga poker”, en það er Facebook póker þar sem

póker er spilaður upp á stig en ekki peninga. Það voru nokkrir meðlimir Zynga á staðnum og voru þeir heitasta umræðuefni fjölmiðla og stjórnenda IFP. IFP gat varla gubbað úr sér einni setningu án þess að Zynga komst þar fyrir. Zynga póker inniheldur u.þ.b. 3 milljónir manna sem spila póker daglega, upp á stig.

Viktor og Teddy Sheringham

Viktor og Teddy Sheringham

Annað mjög forvitnilegt umræðuefni var að pókersambönd allra landa ætti að vera æðsta veldi pókers í því landi. Það þýðir að vilji klúbbur vera starfandi þarf hann leyfi frá sínu pókersambandi og ef einstaklingar eða fyrirtæki, eins og PokerStars, vilja halda pókermót í landinu þarf það að vera í gegnum pókersamband landsins.

Formaður Brasilíska pókersambandsins fór fremstur í flokki með þessa stefnu. Hann fór upp í púlt og fjallaði hann um það hvernig hann náði að lögleiða póker í sínu landi og koma þessu hugtaki “Pókersambandið er æðsta veldið” á.

Hann fékk nokkra háskóla og prófessora til að sanna fyrir sig að póker væri leikur hæfileika en ekki heppni. Skv. lögunum sem ríkja í Brasilíu má ekki spila fjárhættuspil sem eru mestmegnis upp á heppni.

Þegar hann hafði sannað fyrir dómstólum að póker væri hæfnisleikur fékk hann leyfi til að hafa opna pókerstaði og pókersíður í landinu undir þeim formerkjum að pókersambandið myndi alfarið sjá um allt í kringum leikinn.

Kannski ágætt að segja frá því að áður en hann náði að “lögleiða” póker í Brasilíu var hann með 3 pókersíður starfrækar og nokkra pókerklúbba, þessu kom hann á framfæri mjög varfærnislega, þannig að það má deila um hvort hann hafi verið að passa upp á sína eigin hagsmuni eða hagsmuni pókerspilara í landinu en við látum það liggja milli hluta.

Viktor og Barry Greenstein

Viktor og Barry Greenstein

Í þokkabót fer hann með allt valdið í Brasilíu þegar kemur að því að leyfa pókersíður og pókerklúbba þar sem hann er formaður pókersambandsins þannig að hann nær nokkurn veginn að passa upp á sitt einsdæmi að hann fái ekki mikla samkeppni.

Næst á eftir Brasilíu manninum steig mjög áhugaverður maður í púltið, Charles Nesson, prófessor í háskólanum í Harvard sem notar póker sem leið til að kenna nemendum sínum ýmsar leiðir í stærðfræði og hagfræði. Mjög merkur maður.

YouTube: Using Poker To Develop Skills for Business, Politics and Life

Það er kannski ekki þess virði að fara að þylja upp hans ræðu þar sem hún snerti ekki beint okkar málefni heldur var hann að útskýra með sinni Harvard rödd hvernig póker hjálpar honum að kenna nemendum sínum í gegnum póker.

Þegar Nesson hafði lokið sér af fór formaður IFP, Anthony Holden aftur í ræðupúltið og sagði aðeins frá mótinu “The Table” og “Duplicate Poker”, eftir þetta voru formenn pókersambandanna boðið í bjór og veislu á meðan spilarar “Duplicate Poker” fóru inn í salinn og var þeim kynnt hvernig mótið yrði spilað.

Dagur 1 í Duplicate mótinu var svo startað á eins glæsilegan máta og hægt er að ímynda sér. Pókerborðum var raðað upp í nokkur hólf í “London Eye” og svo fengu aðstaðtendur pókersambandanna, þar á meðal við, að fara í lausu hólfin þar sem boðið var upp á kampavín. Varla hægt að ímynda sér betri leið til að klára góðan dag. Eftir stuttan dag 1 fyrir spilara í Duplicate mótinu var öllum boðið í drykki og veitingar.

YouTube: IFP Duplicate Poker Nations Cup 2011

Nýtt og spennandi leikverk að fara af stað!

Leikverkið Póker (e. Dealer’s Choice) hefur slegið í gegn í Bretlandi og Bandaríkjunum.

Næstkomandi sunnudag verður leikverkið Póker frumsýnt í Tjarnarbíói. Það er leikhópurinn Fullt Hús sem setur verkið á svið.

Meðlimir í Pókersambandi Íslands býðst miðinn á sérstöku tilboðsverði eða 2900.kr (Fullt verð 3400.kr). Til að tryggja ykkur tilboðsmiða vinsamlegast hafið samband við midasala@tjarnarbio.is og takið fram að þið séuð meðlimir í Pókersambandi Íslands.

Leikverkið er svört kómedía sem kafar í heim karlmennsku, valdatafls, pókerspilamennsku, keppnisanda, fíknar og kennir öllum að þú skalt ávallt spila með andstæðinginn en ekki spilin sjálf sama hvað er í hvað er í húfi. Þetta er bráðskemmtilegt verk sem samsvarar mjög vel því sem er aðgerast í samfélaginu í dag.

Leikritið (Dealer’s Choice) hefur farið sigurförum um allt Bretland og Bandaríkin og unnið til margra verðlauna. T.d. Besta West End leikritið valiðaf samtökum leikskálda árið 1995 og var einnig valinn besti gamanleikurinn sama ár af Evening Standard.

Leikstjóri: Valdimar Örn Flygenring

Leikarar: Jón Stefán Sigurðsson , Ellert A. Ingimundarson, Þorsteinn Gunnar Bjarnason, Magnús Guðmundsson, Finnbogi Þorkell Jónsson, Ingi Hrafn Hilmarsson.

Frekari upplýsingar: http://www.fullthus.net

Sýnt í Tjarnarbíó:

8. Janúar kl 20.00 (frumsýning)

13. Janúar kl 20.00

14. Janúar kl. 20.00

19. Janúar kl. 20.00

20. Janúar kl. 20.00

Miðaverð: 3400kr

Miðasala: www.midi.is

midasala@tjarnarbio.is eða í síma: 5272102

 

Fjör í London næstu daga!

Tveir stjórnarmeðlimir Pókersambands Íslands lögðu af stað í ferðalag í morgun. Það eru þau Eirný Sveinsdóttir og Viktor Einarsson. Ferðinni er heitið til London þar sem þau munu taka þátt í árlegri ráðstefnu á vegum International Federation of Poker.

Ráðstefnan er haldin á sama tíma og hið árlega Mind Sport Festival. IFP mun setja upp keppni í Duplicate Poker á milli 12 valinna landsliða víðs vegar úr heiminum. Sem dæmi um spilara sem taka þátt í þessari keppni með sínu landsliði eru t.d Barry Greenstein, Antonio Esfandiari, Tony G, Gus Hanses ásamt fleiri stórum nöfnum.

IFP mun einnig halda hið fyrsta opinbera Heimsmeistaramót í Póker um helgina sem gengur undir nafninu “The Table” (IFP World Championship of Poker). Þar mun Hrannar Hallgrímsson vera fulltrúi Íslands og taka þátt í því móti þar sem hann vann sér þáttökurétt á undanmóti sem fram fór á vegum PSÍ á Gullöldinni síðastliðinn September. Verðlaunafé á mótiinu er 500.000$ og mun sigurvegari mótsins fá 250.000$ í sinn hlut.

Það er engin tilviljun fyrir því að IFP sé að halda þessi tvö flottu mót á sama tíma og Mind Sport Festival fer fram. Markmið IFP yfir þessa hátíð er að kynna póker sem hugaríþrótt og festa hann í sessi sem slíka íþrótt

Ég hvet allt pókeráhugafólk til að skoða heimasíðu IFP og Facebook síðu þeirra þar sem má t.d sjá upplýsingar um landsliðin sem taka þátt í Duplicate Poker og meðlimi þeirra.

http://int.pokerfed.org/

https://www.facebook.com/international.federation.poker

Íslandsmeistari í Póker 2011!

Örvar Bjartmarsson er Íslandsmeistari í Póker 2011. Hann sigraði hina ótrúlegu Ragnheiði Sigurðardóttur í einvígi um titilinn og 2.7 milljónir.

Örvar fær einnig gjafabréf frá Iceland Express, 100 evru inneign frá PokerHills ásamt glæsilegu áletruðu armbandi.

Örvar Bjartmarsson - Íslandsmeistari 2011

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ragnheiður Sigurðardóttir endaði í 2. sæti og fær að launum 1.945.000.kr, 100 evru inneign frá PokerHills, gjafabréf frá Iceland Express ásamt auka vinningi frá Hárgreiðslustofunni Hairdoo fyrir að vera sú kona sem fór lengst í mótinu.

Lokaborðið er hafið!

Lokaborð Íslandsmótsins í Póker 2011 er hafið hér á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Nú eru 7 spilarar eftir af þeim 9 sem hófu leik. Það féll í hlut Júlíusar að vera fyrstur út og Ólafur fylgdi fljótlega á eftir.

Á pókervefnum www.52.is er bein textalýsing frá mótinu í gangi og þar má sjá allar upplýsingar um mótið ásamt myndum og textalýsingu af áhugaverðum höndum.

Hér á Icelandair Hótel Reykjavík Natura er einnig frábær aðstaða fyrir áhorfendur eins og sjá má á myndunum á www.52.is.

Kynning á spilurum á lokaborði Íslandsmótsins 2011 (3 af 3)

Lokaborð Íslandsmótsins 2011 fer fram á morgun laugardag kl 14:00 á Icelandair Hótel Rekjavík Natura (áður Hótel Loftleiðir). Áhorfendur eru meira en velkomnir og reyndar mjög æskilegir! Það verður ágætis aðstaða fyrir áhorfendur ásamt því að 1-2 myndavélar munu varpa herlegheitunum á tjald og sjónvarpsskjái. Við höfum einnig heyrt af því að stuðningsmannahópar sumra spilara ætli að fjölmenna þannig að það stefnir í góða skemmtun.

Við fengum glæsilegt tilboð á flottum mat á hótelveitingastaðnum Satt. Þriggja rétta máltíð á 5100.kr og Hamborgari, meðlæti og bjór á 2400.kr. Sjá nánar um tilboðið hér.

Nú er einnig komið að því birta viðtölin við þrjá stærstu staflana á lokaborðinu. Það eru þau Ragnheiður Sigurðardóttir, Örvar Bjartmarsson og Guðmundur Auðun Gunnarsson.

Viðtalið við Ragnheiði má sjá hér.

Viðtalið við Örvar má sjá hér.

Viðtalið við Guðmund Auðun má sjá hér.

Það er svo hægt að nálgast öll viðtölin í flipanum kynning lokaborðspilurum hér uppi hægra megin.

 

 

Kynning á spilurum á lokaborði Íslandsmótsins 2011 (2 af 3)

Í gær birtum við viðtöl við þá spilara sem sem koma inná lokaborðið með minnstu stakkana. Í dag fáum við að fræðast nánar um þá þrjá spilara í sem koma inná lokaborðið í sætum fjögur, fimm og sex. Þeir eru Óskar Hlíðberg, Ólafur Sigurðsson og Hafþór Sigmundsson.

Viðtalið við Hafþór má sjá hér.

Viðtalið við Ólaf má sjá hér.

Viðtalið við Óskar má sjá hér.

viagra